Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1400, 152. löggjafarþing 9. mál: tollalög (niðurfelling tolla á vörur sem eru upprunnar í Úkraínu).
Lög nr. 54 24. júní 2022.
Þrátt fyrir ákvæði 5. gr. skal til og með 31. maí 2023 fella niður tolla af vörum sem fluttar eru inn á tollsvæði ríkisins og eru að öllu leyti upprunnar í Úkraínu. Við ákvörðun um uppruna vöru skal fara eftir ákvæðum fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Úkraínu sem tók gildi 1. júní 2012.
Þingskjal 1400, 152. löggjafarþing 9. mál: tollalög (niðurfelling tolla á vörur sem eru upprunnar í Úkraínu).
Lög nr. 54 24. júní 2022.
Lög um breytingu á tollalögum, nr. 88/2005 (niðurfelling tolla á vörur sem eru upprunnar í Úkraínu).
1. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði 5. gr. skal til og með 31. maí 2023 fella niður tolla af vörum sem fluttar eru inn á tollsvæði ríkisins og eru að öllu leyti upprunnar í Úkraínu. Við ákvörðun um uppruna vöru skal fara eftir ákvæðum fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Úkraínu sem tók gildi 1. júní 2012.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 15. júní 2022.